Fyrsti varaforseti, Kristinn Andersen, tók við fundarstjórn.
Lagt fram bréf, dags. 12. september 2012, frá Guðmundi Rúnari Árnasyni þar sem hann óskar lausnar frá störfum sem bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.
Guðmundur Rúnar Árnason tók til máls.
Ekki voru gerðar athugasemdir við beiðnina og taldist hún því samþykkt.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls. Þá Valdimar Svavarsson.