Þann 25.5.2005 var veitt byggingarleyfi fyrir stækkun á garðskála og viðbyggingu við húsið nr. 1 við Álfaskeið. Garðskáli og viðbygging eru fullgerði, en síðasta skráða úttektin var 22.12.05 á veggjum jarðhæðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 24.08.11, en eigandi fékk frest til 24.09.11.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eigendum og byggingarstjóra skylt að sækja að nýju um lokaúttekt. Verði ekki brugðist við því innan þriggja vikna mun byggingarfulltrúi beita ákvæðum mannvirkjalaga um að knýja fram úrbætur.