Skiltareglugerð fyrir Hafnarfjörð gerir ráð fyrir stóru upplýsingaskilti í hverju iðnaðarsvæði, en ekki öðrum skiltum utan lóða. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir staðsetningu þessa skiltis með því skilyrði að það verði tekið niður þegar upplýsingaskilti fyrir hverfið verður sett upp. Sjá meðfylgjandi athugasemdir.