Lokaúttekt var framkvæd 02.05.12, en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar. Byggingarstjóra var gert skylt að ljúka lokaúttekt innan 4 vikna, en ekkert hefur gerst í málinu.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggignarfulltrúi beita ákvæðum 56. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur.