Lagt fram bréf frá Guðlaugi Adolfssyni f.h. Valhúsa námsmannaíbúða ehf dags. 19.05.11 þar sem spurst er fyrir um breytingu á deiliskipulagi úr námsmannaíbúðum í litlar ódýrar íbúðir á almennum markaði.
Svar
Skipulags og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og heimilar umsækjanda að vinna að breytingu á deiliskipulagi á eigin kostnað en vekur um leið athygli á að umræddar byggingar koma til með að hafa mikil sjónræn áhrif á ásýnd hverfis.