Aðalskipulag Norðurbær breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 292
7. febrúar, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin til umræðu breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Norðurbæinn í Hafnarfirði. Jafnframt er unnið að endurskoðun deiliskipulags Norðurbæjarins. Kynningarfundur á aðalskipulagi og deiliskipulagi var haldinn 31. mars 2011.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar Norðurbæ Hafnarfjarðar dags. 11.07.2011 verði sett í auglýsingu skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt verður umsagnartími deiliskipulags framlengdur sem nemur auglýsingartíma aðalskipulagsins. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar Norðurbæ Hafnarfjarðar dags. 11.07.2011 verði sett í auglýsingu skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010."