Austurgata 43.Byggingarstig og notkun.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 463
5. júní, 2013
Annað
Fyrirspurn
Austurgata 43 er skráð á bst 4(fokhelt), þrátt fyrir að húsið virðist vera fullbyggt og í notkun. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 05.10.11, en byggingarstjóri sinnti því ekki. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði byggingarstjóra 25.01.12 skylt að óska eftir lokaúttekt innan fjögurra vikna. Nýr byggingarstjóri hefur verið ráðinn.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að boða til lokaúttektar sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt er bent á ábyrgð eiganda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra samkvæmt sömu lögum.