Fyrirspurn
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 30. apríl 2013 var tekið undir afgreiðslu skipulags- og byggingarfulltrúa þann 12. apríl 2013 þess efnis að eigenda býflugnabús við Sléttuhlíð væri gert að færa býflugnabúið inná sína lóð vegna ábendinga um að menn væru bæði hræddir við flugurnar og eins væru sumir með ofnæmi. Skipulags- og byggingarráð veitti leyfi til eins árs til reynslu þann 20. september 2011.