Reykjavíkurvegur 45 deiliskipulagsbreyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 296
3. apríl, 2012
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarráð samþykkti 10.01.2012 að augýsa breytingu á deiliskipulagi Norðurbæjar vegna lóðar nr. 45 við Reykjavíkurveg skv. uppdrætti dags. 25. nóvember 2011. Deiliskipulagsbreytingin var auglýst skv. 43. gr. laga nr. 123/2010. Athugasemdir bárust. Lögð fram samantekt skipulags- og byggingarsviðs á innkomnum athugasemdum.
Svar

Guðrún Ólafsdóttir tekur sæti Sigríðar Bjarkar Jónsdóttur á fundinum. Sigurbergur Árnason tekur við formennsku á fundinum.

Skipulags- og byggingarráð óskar eftir umferðartalningu og hraðamælingum á Hraunbrún og Reykjavíkurvegi.