Lögð fram fjárhagsáætlun heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis fyrir árið 2012. Heilbrigðisnefnd fjallaði um áætlunina á fundi þann 24. október sl.
Jafnframt lagðar fram tillögur að gjaldskrám vegna heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlits og vegna hundahalds.
Svar
Bæjarráð vísar fjárhags- og rekstraráætluninni til skoðunar í fjárhagsáætlunarvinnu 2012.
Jafnframt leggur bæjarráð til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögur að gjaldskrám."