Lagt fram bréf FM-húsa ehf dags. 03.11.11 þar sem óskað er eftir að Skipulags- og byggingarráð aflétti þeirri kvöð af húsinu Skipalón 10 að íbúar skuli vera 50 ára og eldri.
Svar
Málinu frestað. Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið en óskar eftir umsögn Framkvæmdasviðs og Fræðsluþjónustu varðandi álag á Hvaleyrarskóla, sem var forsenda kvaðarinnar.