Kvistavellir 27, breyting á byggingarleyfi
Kvistavellir 27
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 385
16. nóvember, 2011
Annað
Fyrirspurn
Ólafur Guðlaugsson sækir 15.11.11 um að breyta hurðum og gluggum samkvæmt teikningum Kristinns Ragnarssonar dags. 14.05.07 breytt 10.11.11.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204392 → skrá.is
Hnitnúmer: 10085969