Kirkjuvellir 9.Byggingarstig og notkun.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 513
4. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Lokaúttekt fór fram 23.01.12, en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 14.08.13 byggingarstjóra skylt að sækja um endurtekna lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum 56. greinar mannvirkjalaga nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að sækja um endurtekna lokaúttekt innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og senda erindi til Mannvirkjastofnunar um áminningu í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga.