Skv. skilmálum í lóðarleigusamningi á að vera komið fokheldi á húsin Drekavelli 48 og 50 en byggingarstjóri hefur ekki kallað eftir fokheldisúttektum.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að óska innan þriggja vikna eftir fokheldisúttekt. Verði ekki brugðist við því mun byggingarfulltrúi beita ákvæðum mannvirkjalaga um að knýja fram úrbætur.