Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna breytingu á deiliskipulagi annars áfanga Valla þar sem gerður verði byggingarreitur á lóð sem ætluð var til síðari þarfa og grenndarkynna breytinguna samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Endanleg staðsetning húsa verði ákveðin í samráði við skipulags- og byggingarsvið.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks taka undir erindið en vísa til bókunar fulltrúa Sjálfstæðisflokks í Fræðsluráði 10. febrúar sl.