Lagt fram til kynningar. 11.1. 1202073 - Stefnumótun menningar- og ferðamálanefndar í ferðamálum. Rætt um myndun starfshóps til að vinna að gerð stefnumótunar í ferðamálum. Ákveðið að nefndarmenn skipi starfshópinn og fundi 6 sinnum vegna stefnumótunarvinnunar í febrúar og mars. Starfsmaður hópsins verði menningar- og ferðamálafulltrúi. 11.2. 1201585 - Safnanótt 2012 Menningar- og ferðamálafulltrúi greindi frá velheppnaðri Safnanótt í Hafnarfirði sl. föstudag. Nefndin þakkar starfsmönnum Bóksafns, Byggðasafns og Hafnarborgar fyrir gott starf. Jafnframt lýsir nefndin yfir vonbrigðum með að Kvikmyndasafn Íslands hafi ekki tekið þátt í verkefninu annað árið í röð. 11.3. 1105286 - Hafnarfjarðarvefurinn. visithafnarfjordur.is Greint frá því að Hugsmiðjan sem unnið hefur að www.hafnarfjordur.is er að hefja vinnu við vefun og uppsetningu á undirsíðunni www.visithafnarfjordur.is. Nefndin leggur áherslu á að vefurinn verði tilbúinn fyrir 1. apríl 2012 enda mikið hagsmunamál fyrir ferðaþjónustuna í bænum. 11.4. 11021243 - Kvikmyndasafn Íslands og Bæjarbíó. Samkomulag um notkun á Bæjarbíói lagt fram en samkomulagið er fylgirit samnings sem undirritaður var þann 1. desember sl. á milli Hafnarfjarðarbæjar og Kvikmyndasafns Íslands. Menningar- og ferðamálafulltrúa falið að ljúka málinu.