Koparhella 1.færanleg steypustöð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 397
15. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Steypustöðin Borg ehf sækir þann 03.02.2012 um leyfi fyrir færanlegri steypustöð. Um er að ræða m.a. frágang á lóð, þvottaaðstöðu, starfsmannaaðstöðu og rannsóknastofu ásamt fleiru. Sjá einnig nánari upplýsingar á meðfylgjandi teikningum frá Birni Gústafssyni kt.180550-4889.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir. Deiliskipulag hefur ekki enn öðlast gildi.