Skipulags- og byggingarráð samþykkir heildarendurskoðunina, ítrekar bókun fulltrúa Hafnarfjarðarbæjar í stýrihópnum í grein 8.4.1. og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu um heildarendurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og heilbrigðisreglugerð nr. 149/1990 m.s.br."