Í hrauninu vestan Heiðvangs 4-10 hefur verið komið fyrir ýmsu dóti og afgangs byggingarefni. Tillaga að breyttu deiliskipulagi gerir ráð fyrir að þetta svæði verði hverfisverndað.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi gefur eigendum frest til 1. apríl að fjarlægja dótið. Að öðrum kosti verður því fargað.