Álhella 3, byggingarstig og notkun
Álhella 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 557
15. apríl, 2015
Annað
Fyrirspurn
Húsnæðið er að hluta skráð á byggingarstigi 1 (skrifstofuhluti óbyggður) og að hluta á byggingarstigi 4 (skemmuhluti tekinn í notkun). Lokaúttekt var gerð 10.10.2014 en lauk ekki þar sem miklar athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi ger-i 11.02.15 byggingarstjóra/eiganda skylt að koma ástandi hússins í lag og boða til endurtekinnar lokaúttektar innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum 56. greinar laga um mannvirki til að knýja á um úrbætur. Ekki hefur verið brugðist við erindinu og enginn byggignarstjóri er skráður á verkið.
Svar

Húsið er ekki brunatryggt og eldvarnarmál ekki í lagi. Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir á eiganda Geymslusvæðið ehf/Ástvald Óskarsson kr. 20.000 á dag frá og með 01.06.15 í samræmi við 57. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi ekki verið skráður byggingarstjóri á húsið sem boði til endurtekinnar lokaúttektar fyrir þann tíma. Dagsektir verða sendar til innheimtufyrirtækis.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 218697 → skrá.is
Hnitnúmer: 10102313