Tekið fyrir að nýju.
Lögð fram umsögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu dags. 18. apríl 2012. Einnig umfjöllun stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 14. mars sl.
Svar
Bæjarráð beinir því til stjórnar Reykjanesfólkvangs að settar verði reglur varðandi skotveiði í fólkvangnum. Jafnframt er vakin athygli á umsögn lögreglu höfuðborgarsvæðisins.