Tekið fyrir erindi varðandi heimagistingu í húsinu Vesturbraut 15. Staðfest hefur verið að ekki sé um gistiheimili að ræða, heldur muni eigandi búa áfram í húsinu. Óskað hefur verið eftir umsögn byggingaryfirvalda um málið.
Svar
Skipulags- og byggingarráð gerir ekki athugasemd við rekstur heimagistingar í húsinu að því gefnu að ákvæði greinar skipulagsreglugerðar nr. 4.2.1 varðandi óþægindi vegna hávaða og umferðar séu uppfyllt.