Lónsbraut, bátaskýli
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 300
29. maí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju skipulag og notkun bátaskýlanna og framtíð svæðisins. Í ljós hefur komið að sum bátaskýlanna eru notuð fyrir aðra starfsemi, svo sem bílaverkstæði, sem er ekki í samræmi við aðalskipulag, þar sem svæðið er skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að hefja vinnu við deiliskipulag svæðisins. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að tryggja að notkun húsanna sé í samræmi við fyrirliggjandi aðalskipulag.