Menningar- og ferðamálanefnd - 181
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3316
3. maí, 2012
Annað
‹ 10
11
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 18. apríl sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 11.1. 1011117 - Krýsuvík-Seltún, Þjónustusamningur við Reykjanesfólkvang. Helena Mjöll Jóhannsdóttir, fulltrúi Hafnarfjarðar í stjórn Reykjanesfólkvangs, mætti til fundarins og gerði grein fyrir áherslum stjórnar og nýrri stjórnunaráætlun. Þá greindi hún frá því að landvörður hóf vinnu 15. apríl eða mánuðu fyrr en í fyrra.
Rætt um næstu skref og hvort endurnýja eigi þjónustusamning á milli Hafnarfjarðarbæjar og fólkvangs um þjónustu við ferðamenn á Seltúnssvæðinu. Ákveðið óska eftir að málefni Seltúns verði tekin fljótlega upp í stjórn Reykjanesfólkvangs þar sem hugað verði að fyrirsjáanlega mikilli fjölgun ferðamanna að svæðinu sbr. fjölda skemmtiferðaskipa sem til Reykjavíkur eru væntanleg í sumar og hvort endurnýja skuli umræddan samning. 11.2. 1105286 - Hafnarfjarðarvefurinn. visithafnarfjordur.is Menningar- og ferðamálafulltrúi greindi frá stöðu mála og að vefurinn yrði opnaður eftir helgina. 11.3. 1203323 - Sumardagurinn fyrsti 2012 Lögð fram dagskrá. 11.4. 1202073 - Stefnumótun menningar- og ferðamálanefndar í ferðamálum. Menningar- og ferðamálafulltrúi fór yfir ný drög að stefnunni. Ákveðið að nefndin hittist fljótlega til þess að fara betur yfir drögin og vinna áfram í stefnunni.