Rauðhella 11. lokaúttekt
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 516
25. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Húsið er skráð á byggingarstigi 4, þótt það hafi verið tekið í notkun, sem er brot á lögum um mannvirki nr. 160/2010, 9. grein. Lokaúttekt var framkvæmd 16.10.12, en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og byggingarstjóri gerir byggingarstjóra/eiganda 20.08.13 skylt að boða til endurtekinnar lokaúttektar innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæðum laga um mannvirki nr. 160/2010 til að knýja fram úrbætur. Skipulags- og byggingarfulltrúi gaf byggingarstjóra 12.02.14 enn tvær vikur til að ljúka við lokaúttekt. Sinnti hann ekki erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Guðlaug Adolfsson frá og með 01.08.2014 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi hann ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga.