Odin Data Centers ehf sækir með vísan í vilyrði veitt Advania hf á fundi bæjarráðs þann 31.5.2012 um stækkun lóðarinnar Steinhellu 10 í samræmi við fyrirliggjandi afstöðumynd.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa tók jákvætt í erindið á fundi 27.5. sl. og vísaði erindinu til bæjarráðs.
Svar
"Bæjarráð vísar eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Odin Data Center ehf viðbót við ofangreinda lóð í samræmi við fyrirliggjandi gögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa."