Klukkuvellir 3, lokaúttekt
Klukkuvellir 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 513
4. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Lokaúttekt var framkvæmd 01.06.12 en lauk ekki þar sem athugasemdir voru gerðar. Lögð fram skýrsla Almennu verkfræðistofunnar dags. febrúar 2012. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 06.06.12 byggingarstjóra skylt að bæta úr þeim atriðum sem athugsemdir voru gerðar við í lokaúttektarskýrslu og benti jafnframt á ábyrgð byggingarstjóra samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr 73/1997 og lögum um mannvirki nr. 160/2010.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að sækja um endurtekna lokaúttekt innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og senda erindi til Mannvirkjastofnunar um áminningu í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga. Öryggismálum hússins er ábótavant.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 203983 → skrá.is
Hnitnúmer: 10085611