Dalshraun 9b, viðbygging
Dalshraun 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 415
27. júní, 2012
Annað
Fyrirspurn
Síld og Fiskur ehf sækir 26.06.2012 um leyfir fyrir viðbyggingu á Dalshrauni 9b, samkvæmt teikningum Ásmundar Sigvaldasonar dagsettar 25.06.2012 stimpil frá heilbrigðiseftirliti barst einnig.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Skv. samþykkt um skiltareglugerð eru flettiskilti ekki leyfileg á þessum stað. Sjá meðfylgjandi athugasemdir. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt:
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120260 → skrá.is
Hnitnúmer: 10030046