Guðmundur Jónsson Heiðvangi 28, leggur inn fyrirspurn varðandi byggingu á óupphituðu geymsluskýli við suðurgafl bílskúrs - viðbygging snýr inn í garðinn. Stærðir - lengd 4100 mm - (sama og breidd bílskúrs) og breidd um 1700 mm. Þak væri einhalla þannig hæst um 1700 mm við hús en ca 1300-1400 mm þar sem það er lægst.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi tekur neikvætt í erindið. Samkvæmt deiliskipulagi fyrir íbúðahverfi í Norðurbæ fyrir reit 4 sem Heiðvangur 28 tilheyrir er ekki heimilt að byggja meira á lóðamörkum en komið er.