Gjaldskrár 2012
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1688
10. október, 2012
Annað
Fyrirspurn
11. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 4. okt.sl. Lögð fram tillaga að leiðréttingu á gjaldskrá vegna frístundaheimila.
Í ljós hefur komið að ekki reyndist unnt að framkvæma samþykkt bæjarstjórnar frá 19. 12, 2011 um gjaldskrá frístundaheimilanna vegna ársins 2012. Á fyrri hluta árs 2012 var stuðst við þá gjaldskrá sem í gildi var síðla árs 2011. Í ljósi þessa vísar bæjarráð eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gjaldskrá frístundaheimila á árinu 2012 verði gjaldskrá sú sem í gildi var fyrir árið 2011."
Svar

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 6 atkvæðum, 5 sátu hjá.