Fjármálastjóri mætti á fundinn og kynnti tillögu að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja hans 2013 sem og áætlun 2014- 2016.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti sína áætlun 23.10. sl. og umhverfis- og framkvæmdaráð sína 24.10. sl.
Fræðsluráð vísar sinni áætlun til bæjarráðs 22.10.
Fjölskylduráð vísar sinni áætlun til bæjarráðs 26.10.
Svar
Bæjarráð vísar fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og fyrirtækja hans 2013-2016 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Gert er ráð fyrir kynningu á áætluninni í bæjarstjórn miðvikudaginn 31. október nk. kl. 14:00