Hagkvæmnigreining á úthlutun lóða á Völlum 7.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3344
7. mars, 2013
Annað
Fyrirspurn
Farið yfir hagkvæmnigreiningu vegna úthlutunar lóða á Völlum 7. Bjarki Jóhannesson og Sigurður Páll Harðarson sviðsstjórar mættu á fundinn.
Svar

Lagt fram.

Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi bókun:

"Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins þakka fyrir greinargóða úttekt en benda á að í úttektina vantar mat fjármálastjóra á hagkæmni lóðaúthlutunar í Skarðshlíð miðað við þær aðstæður sem sveitarfélagið er í, þeas að 90% af lóðarverðinu rynni til slitastjórnar Depfabanka vegna veðsetningar á öllum óseldum lóðum."