15. liður úr fundargerð BÆJH frá 14.okt. sl.
Lögð fram endanleg tillaga að nýjum samstarfssamningi um rekstur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Bæjarráð vísar fyrirliggjandi samstarfssamningi til bæjarstjórnar.
Svar
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum fyrirliggjandi samstarfssamning um rekstur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.