Magnús Pálmi Skúlason hdl, f.h. Lögskipta ehf gerir fyrirspurn með tölvupósti þann 2.1.2012 um möguleika til að skipta húsinu í 3 íbúðir.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi tekur neikvætt í erindið. Í deiliskipulagsskilmálum segir: "Ekki er heimilt að fjölga íbúðum í hverfinu á þegar byggðum lóðum og gildir það jafnt hvort um er að ræða breytingar eða nýbyggingar."