Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu.
Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna því að málið sé nú tekið upp með þessum hætti enda í samræmi við tillögu bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá 5. des. sl.. Mikilvægt er að glæða St. Jósefsspítala lífi og starfi á nýjan leik
og fjölga þannig atvinnutækifærum í bæjarfélaginu."
Bæjarráðsfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna bóka eftirfarandi:
"Tillagan kemur í eðlilegu framhaldi af viðræðum stjórnenda Hafnarfjarðarbæjar við ríkið um framtíðarnýtingu fasteignanna við Suðurgötu."