Lagt fram fundarboð dags. 5. mars 2013 vegna aðalfundar Suðurlinda ohf. sem haldinn verður 18. mars nk.
Einnig lagðar fram samþykktir félagsins og ársreikningur 2012.
Svar
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að félaginu verði slitið og tekið upp óformlegt samráð viðkomandi aðila.
Jafnframt er kosningu í stjórn vísað til bæjarstjórnar.