Fyrirspurn
Fyrirspurn um fjölda lóða.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir skriflegum upplýsingum/yfirliti yfir:
1) Lausar lóðir og/eða svæði í grónum hverfum í Hafnarfirði þar sem hugsanlega væri grundvöllur fyrir því að skipuleggja nýjar byggingarlóðir og þétta þar með byggð.
2) Lóðir sem úthlutað hefur verið á sl. 5 árum en framkvæmdir hafa ekki hafist á (lóðir sem ekki var skilað).
3) Fjölda íbúða/íbúðarhúsa sem eru í byggingu í bæjarfélaginu en ekki flutt í.