Mjósund 10 ehf leggur fram fyrirspurn um að breyta félagsmiðstöð í fjöleignahús, 3 íbúðir. Um er að ræða breytingar innanhúss og breytta notkun. Skipulagsstofnun hefur sent breytingu á aðalskipulagi til staðfestingar.
Svar
Skipulags- og byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið og óskar eftir uppdráttum samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012 með umsókn um byggingarleyfi.