Dalshraun 15,ófullgert gistirými tekið í notkun án úttektar.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 451
13. mars, 2013
Annað
Fyrirspurn
Þarna eru leigð út herbergi í gistiheimili í ófullgerðu húsnæði. Flóttaleiðir úr herbergjum eru ekki í lagi eða samkvæmt teikningum. Brunaviðvörunarkerfi ekki komið. Brunaskil ekki samkvæmt teikningum. Séruppdráttum hefur ekki verið skilað til byggingarfulltrúa. Engin byggingarstjóri eða meistaraskráning var á framkvæmdinni.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi beinir því til nýs eiganda að koma húsinu í viðunandi horf og sækja um úttektir samkvæmt því. Að öðrum kosti verður farið fram á lokun gistiheimilisins.