Álfaskeið 18, framkvæmdir, úttektir og skráning
Álfaskeið 18
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 463
5. júní, 2013
Annað
Fyrirspurn
Byggingarfulltrúi samþykkti árið 2006, byggingu á bifreiðageymslum og stækkun húss Álfaskeiði 18. Engar skráðar úttektir eru á framkvæmdunum en báðar framkvæmdir uppbyggðar. Hvorki fokheldis- né lokaúttekt hefur farið fram né lögð inn ný eignaskiptayfirlýsing.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að boða til fokheldisúttektar, en lokaúttektar hafi mannvirkið verið tekið í notkun, sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt er bent á ábyrgð eiganda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra samkvæmt sömu lögum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 119849 → skrá.is
Hnitnúmer: 10028287