Vesturbraut 9, byggingarleyfi
Vesturbraut 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 475
28. ágúst, 2013
Annað
Fyrirspurn
Pegasos slf. sótti um þann 27.06.13 að breyta útliti, setja nýjar tröppur og svalir á húsið ásamt því að endurnýja klæðningu skv. teikningum Gunnlaugs Jónassonar dags. 27.06.13. Breytingar hafa verið gerðar á húsinu án tilskilinna leyfa, og eigandi sinnti ekki fyrirmælum byggingarfulltrúa um að stöðva framkvæmdir (bréf dags. 29.04.2013 málsnr. 1304460) Bókun afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa frá 3. júlí 2013 var eftirfarandi: Skipulags- og byggingarfulltrúi frestar erindinu þar sem innsend gögn eru ófullnægjandi. Sjá meðfylgjandi athugasemdir. Nýjar teikningar hafa borist dags. 23. ágúst 2013.


Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstaka efnisþáttum.

Skilyrt er að vottorð um lokaúttekt verði ekki gefið út nema að liggi fyrir ný og endurskoðuð eignaskiptalýsing

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122839 → skrá.is
Hnitnúmer: 10027589