Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Iceeignum, dótturfélagi Icelandair, lóðinni Flugvöllum 1 í samræmi við fyrirliggjandi umsókn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa.
Bæjarráð felur bæjarstjóra jafnframt að ganga frá samningum við væntanlegan lóðarhafa í samræmi við samþykktir bæjarstjórnar frá 2. október og 16. október sl."