Tillaga um afturköllun á úthlutun lóðar. Lóðinni var úthlutað 2013 en með breyttu skipulagi er hún ekki lengur til staðar. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagsþjónustu og Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður mæta á fundinn.
Svar
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að vegna breytinga á skipulagi verði úthlutun á lóðinni Bergsskarð 5 til Þrastarverks ehf. afturkölluð.