Fyrirspurn
3. liður úr fundargerð SBH frá 22.okt. sl.
Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu. Lagt er til að landnotkun verði breytt úr blandaðri notkun opinberar stofnanir og opið svæði til sérstakra nota í athafnasvæði, og tengist það þá svæðinu Selhraun norður.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að aðalskipulagsbreytingunni verði auglýst með áorðnum breytingum skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu verði auglýst samkvæmt 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010."