Fyrirspurn
2. liður úr fundargerð SBH frá 19.nóv. sl.
Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu. Lagt er til að landnotkun verði breytt úr blandaðri notkun opinberar stofnanir og opið svæði til sérstakra nota í athafnasvæði, og tengist það þá svæðinu Selhraun norður. Skipulagslýsing var samþykkt af bæjarstjórn og hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingunni dags. 7. október 2013. Haldinn var kynningarfundur á skipulagstillögunni 18.11.13.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að aðalskipulagsbreytingunni verði auglýst skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu dags. 7.10.2013 verði auglýst samkvæmt 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010."