Skipulags- og byggingarráð samþykkir aðalskipulagsbreytinguna og að málinu verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu dags 07.10.2013 og að málinu verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010".