Norðurhella 5, breyting
Norðurhella 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 489
4. desember, 2013
Annað
Fyrirspurn
Umhald tækja ehf sækir 30.10.13 um að breyta útliti húss og lóðarskipulagi samkvæmt teikningum Halldórs Hannessonar dags. 27.10.13 Nýjar teikningar bárust 20.11.2013 Skráningatafla barst 25.11.2013 Nýjar teikningar bárust 28.11.13
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki. Á séruppdráttum þarf m.a. að koma fram hvernig dagvatn er leyst innan lóðar.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204718 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092976