Fyrirspurn
Brynja hússjóður Öryrkjabandalagsins sækir með tölvuposti dags. 11.12.13 um að breyta deiliskipulagi lóðanna í samræmi við innlagðan uppdrátt. Lóðirnar sameinaðar og raðhúsaíbúðum fjölgað úr 4 í 7. Umsögn Umhverfis- og framkvæmdasviðs liggur fyrir. Skipulags- og byggingarráð gerði athugasemd við fyrirkomulag bílastæða. Lagfærður uppdráttur dags. 22.01.14 hefur borist, þar sem brugðist hefur verið við athugasemdum. Erindið var grennarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er athugasemdatíma lokið. Athugasemdir bárust.