Kaplahraun 16, byggingarleyfi
Kaplahraun 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 531
8. október, 2014
Annað
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi sendir erindið í grenndarkynningu samkvæmt 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynningu telst lokið þar sem aðilar hafa áritað uppdrátt. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin með fyrirvara um brunatæknilega hönnun í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt, þ.m.t. brunatæknileg hönnun.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121353 → skrá.is
Hnitnúmer: 10034288