Hafnarstjórn - 1444
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3368
30. janúar, 2014
Annað
‹ 11
12
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 28. janúar 2014.
Svar

Lagt fram til kynningar. 12.1. 1310316 - Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2014 Lagt fram bréf frá Eimskip ehf. þar sem þess er farið á leit að Hafnarfjarðarhöfn endurskoði ákvörðun sína um hækkun gjaldskrár í ársbyrjun 2014.
Hafnarstjóri lagði til að inn í gjaldskrá hafnarinnar verði bætt við tveimur liðum er varða vigtun með pallvogum. Hafnarstjórn Hafnarfjarðar vill leggja sitt af mörkum með aðilum vinnumarkaðarins og annarra, til að halda niðri verðlagi í landinu og skapa stöðugleika í efnahagsmálum.
Í ljósi þessa samþykkir hafnarstjórn að hækka ekki gjaldskrá hafnarinnar.
Hafnarstjórn samþykkir jafnframt lækkun á gjaldi fyrir vigtun á pallvogir, þannig að lágmarksgjald fyrir vigtun á pallvogir verði 900 kr á vigtun í stað 1.800 kr í dagvinnu og 1.260 kr á vigtun í yfirvinnu í stað 2.520 kr. 12.2. 1311112 - Grænfána- og Bláfánaverkefni Tekin fyrir hvatning Umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar, um að fá kynningu á Bláfánaverkefni Landverndar, sem ráðið samþykkti á fundi sínum 15. janúar sl. Hafnarstjóra er falið að óska eftir kynningu á Bláfánaverkefni Landverndar. 12.3. 1401647 - Just Mariiam, flutningaskip Hafnarstjóri greindi frá málsatvikum varðandi flutningaskipið Just Mariiam.